Ég stend nú frammi fyrir því að eiga frí um
verslunarmannahelgina... Það myndi vera í fyrsta sinn sem ég er í
fríi þessa helgi síðan 1999. Af því tilefni ætla ég bara að vera í
borginni og skella mér í afmælispartý-ið á laugardaginn. Mexíkóskt
þema hjá afmælisbarni morgundagsins, henni Heiðdísi skvísu.
Spurning um að skella svo í eina köku þar sem fólk er farið að boða
sig í heimsókn um helgina, mér líst mjöööög vel á það
Haldiði svo ekki bara að ég sé búin að skrá mig á golfnámskeið
Byrja 14. ágúst og hlakka alveg ótlega mikið til. Myndi þó
ekki endilega segja að hæfileikar mínir í þessari íþrótt væru
gríðarlegir, en það kemur vonandi með æfingunni. Þessi baktería er
bráðsmitandi, þannig að passið ykkur
Best annars að halda bara áfram að vinna í þessu ógeðslega góða
veðri. Færi lúxus ef maður hefði loftræstingu í húsinu, en svo gott
er það nú ekki