Hakuna Matata

29.10.2006 17:05:54 / lovgun

...

Mér finnst síðan mín ógeð eftir að blueman hnerraði yfir hana... Auglýsingarnar eru líka ljótar... Þess vegna er þetta málið:)

Er semsagt flutt hingað


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 15:17:02 / lovgun

...

Hver í ósköpunum breytti síðunni minni í svona gaaaasalega ósmekklega bláa klessu?? Mér finnst þetta leiðinleg síða, uppfull af auglýsingum og öðrum óþarfa.

En ég læt það nú ekki skemma fyrir gleðinni sem ríkir í dag. Það er komin helgi, brósi á leið í mat í kvöld til okkar, konu- og karlakvöld Vodafone á morgun sem þýðir ofurfyllerí eins og venjulega, almenn skemmtilegheit og almenn gleði:) Obbosslega gaman að vera ég þessa dagana, eins og venjulega ;)

Ætlaði annars bara að óska ykkur góðrar helgar:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 15:12:04 / lovgun

...

Sá allra skemmtilegasti og sennilega áhrifamesti fyrirlestur sem ég hef nokkurn tíma setið var í morgun. Eftir að hafa verið á þriggja tíma kynningu um gildi Vodafone kom maður að nafni Steve Barnett (getið skoðað meira á http://nonspeaker.com ) og var með "fyrirlestur" fyrir starfsfólk. Hann var með trommara með sér og allt fór þetta fram í formi tónlistar - ég hef aldrei verið eins mótíveruð eins og þegar ég labbaði út. Samt sagði maðurinn nákvæmlega ekki neitt í 45 mínútur heldur stjórnaði okkur með tónlist og öðrum skemmtilegheitum. Hreint ótrúlegt:)

Lífið gengur annars bara sinn fína vanagang, bíllinn seldur, annar bíll kominn í staðinn, fínu húsgögnin vekja mikla lukku, jólaföndrið er langt komið og ýmislegt skemmtilegt framundan, meðal annars afmæli, árshátíð í útlöndum og svo að sjálfsögðu jólin ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 16:49:23 / lovgun

...

Ohhhh hvað ég hlakka til að koma heim á eftir. Finnur fékk þá snilldarhugdettu í gær að kíkja á varnarliðssöluna hjá frænda mínum eftir skrifborði. Við gleymdum að kaupa skrifborð, en keyptum í staðinn fuuuullt af nýjum skápum og skúffum í stofuna okkar á óóóóótrúlega góðu verði:) LOKSINS get ég hent út óóóóógeðis skápunum sem ég keypti í Rúmfatalagernum þegar ég var 15 ára! Þessi skápar og skúffur standa núna þolinmóð í stofunni okkar og bíða eftir því að við finnum þeim stað. Það skal gert í kvöld:) Vííííí:)

Síðan er ég að hugsa um að leggja fram frumvarp um að bilið á milli v og b á lyklaborðinu verði stækkað. Er aðeins of oft búin að slá inn Keflavíkurflugböllur í dag. Kenni þreytu dagsins um það að ég flissa í hvert skipti sem ég sé þessa vitleysu... Svona er maður nú einfaldur!

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 13:02:06 / lovgun

...

Mikil endalaus snilld þykir mér þessi Og1 þjónusta hjá Og Vodafone. Án þess að hafa áhyggjur af svimandi háum símareikningi, gat ég talað við Hildi mína í einn og hálfan klukkutíma í gær og þarf ekki að borga krónu fyrir. Á meira að segja hálftíma inni þennan mánuðinn, spurning um stutt spjall fyrir mánaðarmót aftur;)

Jafn mikil snilld þykja mér tónleikarnir sem ég fór á í gærkvöldi. Eftir ljúffenga pizzu og hlægilega þjónustu á Rossopomodoro, skunduðum við mútta í Laugardalshöllina þar sem Bó og Sinfó (og fullt af öðru fólki) söng og spilaði fyrir okkur í tvo klukkutíma. Fékk gæsahúð að meðaltali þrisvar sinnum í hverju lagi. Hreinasta snilld og yndislegt kvöld með múttunni minni sem er best:)

En nú er förinni heitið í krúttbossaklapp og kinnaklípingu hér í Grafarvoginum. Hef ekki hitt ormana mína (eða ormanna þeirra Salome og Valtýs) síðan í júlí og ætla mér að bæta úr því í dag:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 18:48:37 / lovgun

...

Í dag var komið að öðrum og síðasta hluta "skrifanafniðmitthéroghéroghéroghér" leiksins. Fyrri hluti fór fram þann 23. maí. Í dag skrifuðum við sem sagt undir afsalið að íbúðinni okkar. Eigum hana því með húúúð og hári, eða þannig sko...;)

Alveg að koma helgi, sem er gott, því henni verður vandlega eytt á Laugarvatni, eða þar einhvers staðar rétt hjá. Sumarbústaður, skemmtilegur félagsskapur og fimmtugsafmæli getur alveg ábyggilega ekki klikkað:)

Ójá, gleymum því svo ekki að á þriðjudagskvöldið síðasta byrjaði ég aftur að syngja með Gospelsystrum Reykjavíkur. Ahhh þvílík snilld... Endalaus útrás sem maður fær við það að góla útí loftið, og ekki skemmir fyrir að stjórnandinn er strax farin að tala um jólalög. Það leiðist jólajeppum ekki;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 16:42:52 / lovgun

...

Á flestum almennum stöðum eru klósett fyrir konur og önnur klósett fyrir karlmenn. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvers vegna klósett fyrir fatlað fólk er alltaf sama klósett og fyrir konur...

Og fyrst ég er farin að velta klósettum fyrir mér, þá hef ég líka stundum pælt í því af hverju aðstaða til að skipta á börnum sé eingöngu á kvennaklósettum...

Skyldi innihald þessa bloggs nokkuð stafa af því að eitthvert ólag er á klósettaðstöðunni hérna? Allavega á neðri hæðinni;) 

Annars er ég bara nokkuð hress;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 21:12:28 / lovgun

...

Í morgun, þegar ég var búin að eiga vikulegt kvolitítæm með sjálfri mér, morgunmatnum og helgarblöðunum, lá ég í sófanum í stofunni minni og horfði í kringum mig. Það tók mig sko alveg góóóðan tíma að fatta að ég þarf ekki að flytja úr þessari íbúð innan nokkurra mánaða affí að ég á´ana:) Samt ekki ein.. og það er það besta, laaaangbesta:)

Enginn skólabyrjun framundan hjá mér eins og svo mörgum. Finnst það pínu skrýtið, en um leið alveg frábært:) Er búin að vera í skóla síðan ég var 6 ára og er eiginlega pínu eirðarlaus yfir því að vera ekki að skoða stundatöflur, skrá mig í námskeið og svo framvegis. Verður samt örugglega mest skrýtið um jólin að fá bara ekkert jólafrí...

Annars ætlaði ég bara að minna ykkur á það að lífið er yndislegt, njótið þess:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 12:21:43 / lovgun

...

Ég stend nú frammi fyrir því að eiga frí um verslunarmannahelgina... Það myndi vera í fyrsta sinn sem ég er í fríi þessa helgi síðan 1999. Af því tilefni ætla ég bara að vera í borginni og skella mér í afmælispartý-ið á laugardaginn. Mexíkóskt þema hjá afmælisbarni morgundagsins, henni Heiðdísi skvísu. Spurning um að skella svo í eina köku þar sem fólk er farið að boða sig í heimsókn um helgina, mér líst mjöööög vel á það:)

Haldiði svo ekki bara að ég sé búin að skrá mig á golfnámskeið:) Byrja 14. ágúst og hlakka alveg ótlega mikið til. Myndi þó ekki endilega segja að hæfileikar mínir í þessari íþrótt væru gríðarlegir, en það kemur vonandi með æfingunni. Þessi baktería er bráðsmitandi, þannig að passið ykkur;)

Best annars að halda bara áfram að vinna í þessu ógeðslega góða veðri. Færi lúxus ef maður hefði loftræstingu í húsinu, en svo gott er það nú ekki;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 11:49:07 / lovgun

...

Djí hvað ég er fegin að hádegisverðarmatseðlinum, sem samanstóð af karrýsúpu með eplum og pasta með steiktum steinbítskinnum var skipt út fyrir grilldag. Skil ekki alveg hverjum datt hitt í hug...

Og Eyþór, soooooooooorrrrrrrryyyyyyyyy við eigum sko líka feitt inni hjá þér af því að þú varst svo duglegur að hjálpa okkur við flutninginn. Takkkkkk svo mikið og fyrirgefðu að ég gleymdi að minnast á þig!

Annars held ég að það sé nú barasta útilega um helgina, valið stendur á milli 10 stiga hita á norðurlandinu eða rigningar á suðurlandinu;) Það á samt eftir að breytast, það er nú bara miðvikudagur í dag:)


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 11:16:49 / lovgun

...

Nákvæmlega sólarhring eftir afhendingu sátum við, ásamt 6 frábærum hjálparhellum og sporðrenndum fyrsta kvöldmatnum í Laufrimanum. Ég er ekki að grínast, en það tók sem sagt sólarhring að mála og flytja allt dótið inn (og nei, við vöktum ekki í sólarhring eins og sumir halda). Þvílíkir snillingar sem komu og aðstoðuðu okkur, mamma og pabbi, Ella og Einar og Dagmar og Steini... þið eigið svo feeeeeeitt inni hjá okkur. Þúúúúúsund þakkir fyrir hjálpina við málninguna og flutninginn. Þið eruð algjört æði:) Þið hin sem voruð búin að bjóða fram aðstoð ykkar, þúsund þakkir sömuleiðis... hlutirnir gerðust einhvern veginn bara svo geðveikt hratt;)

Við erum búin að koma okkur geðveikt vel fyrir og líður alveg óskaplega vel í nýju fínu íbúðinni okkar sem er orðin reddí fyrir gestagang:)


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 13:23:18 / lovgun

...

Ég get svo svarið það að ég er við það að fá magasár af spenningi. Stökk t.d. fram úr rúminu klukkan átta í gærmorgun og hoppaði í smástund á gólfinu. Myndi ekki endilega segja að ég hefði fengið stórt bros frá þeim sem lá ennþá og svaf á sínu græna;) Það er sko soldið erfitt að höndla mig í miklum spenningi og æsingi, það vita þeir sem mig þekkja:)

Ég er samviskusamlega búin að telja niður síðan í 53. Síðan eru liðnir 52 dagar og fljótlega munum við flytja í Laufrimann... Mér finnst þetta einhvern veginn of gott til að vera satt. Sumarfrí fram á þriðjudag hjá mér svo ég bið ykkur vel að lifa og býð ykkur velkomin í heimsókn í Grafarvoginn:)

Lovísa með sólskinsbros og hamingjufjall í maganum:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 16:48:02 / lovgun

...

Ég fór að hugsa um það um daginn þegar ég horfði á einn af fótboltaleikjunum sem ég hef verið að horfa á undanfarið, hvaða "læti" þetta eru í konum út af lærum og rassi fótboltaspilaranna. Jújú, eflaust eru þetta einhver stæltustu læri og rassar sem fyrirfinnast, en kommon, myndavélarnar eru laaaangt frá vellinum svo það sést ekkert, og þegar/ef myndavélin nálgast, þá eru þessir gaurar í hólkvíðum stuttbuxum sem ná niður að hnjám og sokkum sem ná uppað hnjám... Og hvað, eru það þá hnén sem eru svona sexý eða?? Bara skil þetta ekki alveg, en þakka hins vegar pent fyrir að HM ljúki nú um helgina, veit um fleiri stelpur sem taka undir þessar þakkir;)

Það er kominn föstudagur, sem þýðir það að næstkomandi föstudag verð ég í fríi, með málningarpensilinn í annarri og sennilega í hinni líka. Það er sem sagt ekki nema vika í afhendingu... VIKA! Fjúff...

Í kvöld er ætlunin að væta kverkarnar örlítið,  Hildur og Óskar ætla að koma og grilla með okkur og með því er nauðsynlegt að drekka eitthvað pínulítið sterkara en kók;)

Góða helgi í góða veðrinu:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 11:25:45 / lovgun

...

11 dagar... Ég er að segja ykkur það, 11 dagar! Máli máli máli og flytji flytji flytji:) 11 dagar!

Úfffff:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 12:48:39 / lovgun

...

Enn einn flutningurinn afstaðinn... Í þetta skiptið er það vinnustaðurinn sem flutti sig niður í Skútuvog og sameinaðist þar restinni af Og Vodafone sem var ollreddí flutt. Ég var svo heppin með skrifborð, alveg upp við vegginn með útsýni yfir allt gólfið. Og það er sko ekkert smá flæmi!

Eins og áður hefur komið fram er helgarvinnan lítil sem engin í sumar, einungis laugardagurinn 19. ágúst. Þar sem svo óheppilega vildi til að ég var einnig á leið á ættarmót á Hornafjörð þessa sömu helgi (og það fyndna er að ættarmótið tengist minni ætt ekki á nokkurn hátt...) er ég búin að leggja mig alla fram um að reyna að fá þessum laugardegi skipt. Kröfur mínar voru þær að laugardagurinn yrði helst ekki eftir miðjan júlí og ekki um verslunarmannahelgina (bara affí að ég elska þriggja daga helgar, ekki affí að ég er að fara á útihátíð). Það virtist enginn vilja uppfylla þessi skilyrði þangað til allt í einu... Víííí:) Ég tek laugardaginn 8. júlí og þar með verður minni helgarvinnu í sumar lokið:) Ég get því notað allar helgar eftir afhendingu (16 dagar krakkar... íbúðin verður okkar eftir 16 daga fjúffffff!!) í að gera íbúðina fína og sæta og gera allt sem mig langar til:)

Humarhátíð næstu helgi og mun þetta verða önnur humarhátíð frá upphafi sem ég missi af. Einhvern veginn er ég ekkert spennt fyrir þessu og því var bara ákveðið að vera heima þetta árið. Spurning um að finna sér golfvöll rétt fyrir utan borgina og fá smá golfkennslu ef veðrið verður gott:)

Til hamingju með ammælið Svana:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20